Haukakonur í handboltanum fá góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil

Haukarstelpur hafa fengið góðan liðstyrk því Valdimar Óskarsson formaður hkd. Hauka ásamt Sólveigu Björk Ásmundardóttur hefur gengið til liðs við Hauka á lánssamning frá Stjörnunni. Sólveig stóð á milli stanganna hjá Stjörnunni allan síðasta vetur og var einn af lykilleikmönnum liðsins. Að fá Sólveigu til liðs við Hauka fyrir komandi keppnistímabil er sannkallaður hvalreki þar sem Bryndís Jónsdóttir er með slitin krossbönd og ekki klár fyrr en líða tekur á keppnistímabilið. Leikmannahópur Hauka hefur verið talsvert styrktur frá síðasta keppnistímabili. Á dögunum var tilkynnt að Marija Gedroit, skytta frá Litháen, væri gengin til  liðs við félagið en áður höfðu þær Ásta Björk Agnarsdóttir og Silja Ísberg komið til Hauka.
Það verður gaman að fylgjast með hinu unga liði Hauka á komandi keppnistímabili.

Áfram Haukar!