Hanna Guðrún í A-landsliði kvenna

Júlíus Jónasson A-landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik valdi í gær 16 leikmenn til að taka þátt í tveimur leikjum liðsins í páskavikunni sem eru leikir þess í undankeppni EM. Ísland er þar í riðli ásamt Austurríki, Frakklandi og Bretlandi. Leikið er heima og að heiman og komast 2 efstu liðin áfram úr riðlinum.

Í þeim hópi er einn leikmaður frá Haukum og er það Hanna Guðrún Stefánsdóttir. 

Leikið verður við Breta miðvikudaginn 31. mars í London, Crystal Palace National Stadium kl. 19.00. Síðan verður leikur hér heima við Breta á laugardeginum 3. apríl kl. 14.00 í Laugardalshöll.

Hópurinn sem valinn hefur verið er eftirfarandi og eru tveir nýliðar í hópnum, Arna Erlingsdóttir KA/Þór og Rebekka Skúladóttir Val.
 
Markverðir:
Berglind Íris Hansdóttir, Valur
Íris Björk Símonardóttir, Fram

Aðrir leikmenn:
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Valur
Arna Erlingsdóttir, KA/Þór
Arna Sif Pálsdóttir, Horsens HK
Ásta Birna Gunnardóttir, Fram
Elísabet Gunnardóttir, Stjarnan
Hanna G. Stefánsdóttir, Haukar
Harpa Sif Eyjólfsdóttir, Stjarnan
Hrafnhildur Skúladóttir, Valur
Karen Knútsdóttir, Fram
Rakel Dögg Bragadóttir, Levanger
Rebekka Rut Skúladóttir, Valur
Rut Jónsdóttir, Team Tvis Holstebro
Stella Sigurðardóttir, Fram
Sunna Jónsdóttir, Fylkir

 
Við óskum Hönnu til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis ytra.