Í dag fór fram sameiginleg æfing handboltastelpna í 6.flokki og fótboltastelpna í 5.flokki. Báðir flokkarnir eru skipaðir stelpum sem eru fæddar 1995 og 1996. Æfingin byrjaði á því að farið var inn í íþróttasal þar sem keppt var í handbolta og körfubolta. Þegar tíminn inni var búinn var farið út á gervigras og þar var spilaður fótbolti. Æfingin var skemmtileg á allan hátt og heppnaðist mjög vel. Við þjálfararnir vorum mjög ánægðir með útkomuna og ákveðið var að endurtaka leikinn aftur síðar í vetur. Myndir af deginum eru á blogsíðu 6.flokks kvenna, {Tengill_41}.