Arnar Daði Arnarsson skrifar
Nú er komið að því að birta viðtal við einn af nýju leikmönnum Hauka, Hafstein Ingason.
Nú ert kominn heim, hvernig lýst þér á það ? – Mér lýst gríðar vel á það að vera kominn í góðærið aftur.
Hvað kom til að þú ákvaðst að koma aftur til Íslands ? – Þetta átti svosem ekkert að vera mikið lengri dvöl, var svona aðallega hugsað til að prufa eitthvað nýtt. Ákvað að það væri kominn tími á að klára námið og fara koma sér almennilega fyrir og þess háttar.
Fékkstu tilboð frá öðrum liðum en Haukum ? – Og hver var ástæðan að þú valdir Hauka ? – Já, það voru smá þreifingar en ekkert alvarlegt.- Það var eiginlega eftir fund sem ég átti með Aron að ég var sannfærður um þetta væri rétti klúbburinn fyrir mig.
Telur þú vera mikinn mun á íslensku og dönsku deildinni ? – Ef svo er, hver er þá aðal munurinn ? – Já það er töluverður munur á þessum deildum. Mun meira fjármagn er í dönsku deildinni, áhugi almennings er meiri og það er mun meiri umfjöllum í miðlum þar í landi sem skilar sér að sjálfsögðu í betri handbolta.
Gætu Haukar gert eitthverjar rósir t.d. í efstu deild í Danmörku ? – Já ég hugsa það, gætum vel verið um miðja deild þar og jafnvel eitthvað hærra. Reyndar er deildin þar að styrkjast gífurlega með hverju ári og er að verða ein af þeim bestu í heiminum.
Hvernig lýst þér á Haukaliðið og Aron Kristjáns. ? – Lýst hrikalega vel á þetta allt saman. Klassa mannsskapur þarna og virðist vera mjög þéttur. Og allt í kringum klúbbinn virðist vera upp á 10. Aron er gífurlega fær þjálfari og það sem ég hef séð og heyrt er ekkert nema gott.
Nú hafa 4 leikmenn komið í Hauka úr atvinnumennskunni, munu Haukar ekki bara einoka titlana á næsta ári hér innan lands? – Við skulum vona það. Við eigum fína möguleika á því að keppa um titla á öllum vígstöðum og ætlum okkur það að sjálfsögðu.
Telur þú íslensku deildina vera sterkari nú, en þegar þú varst síðast að spila í henni ? – Já ég hugsa það. Allavega verður hún sterkari í ár en í fyrra með tilkomu margra nýrra leikmanna sem hafa verið að spila erlendis. Síðan virðist vera ógrynni af frambærilegum ungum spilurum í dag þannig að þetta er ekkert nema jákvætt.
Hver er þín skoðun á fyrirkomulaginu sem verður á næsta ári á deildinni? – Mér finnst þetta klárlega skref í rétta átt. Bara jákvætt að það sé verið að taka upp úrslitakeppnina aftur. Einnig kemur 4 liða úrslitakeppni mun betur út en 8 liða.