
Það var búist við dramatík. Það var búist við spennu. Það var búist við stemmningu. Stórleikur Hafnarfjarðarliðanna í Eimskipsbikarnum stóð undir þessum væntingum og meira til. Tvíframlengdur, hörkuspennandi 80 mínútna leikur þar sem hvort liðið sem var gat farið með sigur af hólmi. Sannkölluð handboltahátíð fyrir þá sem mættu í Krikann og allan þann fjölda sem fylgdist með á skjánum. Eitt liðið varð þó að draga lengstra stráið og að þessu sinni voru það Haukar. FH leiddi þó nær allan tímann í hefðbundnum leiktíma og eiga hrós skilið fyrir frábæran leik og frábæra umgjörð um þennan leik sem verður lengi í minnum hafður. Einar Örn tryggði Haukum framlengingu með enn einu flautumarkinu. Freyr og Sigurbergur skoruðu svo 4 síðustu mörk Hauka í leiknum. Lokatölur urðu 37-38.
FH-ingar mætu mjög grimmir til leiks, léku framliggjandi vörn á móti Björgvini og Sigurbergi og komust í 3-0. Haukar sótt svo í sig veðrið og jöfnuðu 4-4. Markvarslan í fyrri hálfleik var mun meiri FH-megin og var það ein helsta skýringin á þriggja marka forystu FH í leikhléi, 18-15. Hálfleikstölur voru því nærri því að minna á lokatölur í toppslag Vals og Hauka á dögunum. Rétt fyrir leikhlé fékk Ólafur Gústavsson rautt spjald fyrir að fara harkalega í Elías Má. FH-ingar létu það ekki á sig fá og náðu góðri forystu um miðbik seinni hálfleiks 21-16. Birkir Ívar byrjaði að sækja í sig veðrið og hið sama gilti um Sigurberg í sókninni. FH hafði þó áfram forystuna og voru þremur mörkum yfir þegar 10 mínútur voru eftir en þá höfðu Haukar unnið kafla þar sem þeir voru tveimur leikmönnum fleiri einungis 1-0. Guðmundur Árni var ískaldur á vítalínunni trekk í trekk á þessum kafla og jafnaði m.a. leikinn 28-28 þegar tvær mínútur voru eftir. Í framhaldinu skoraði hinn ungi Benedikt Kristinsson fyrir FH og hinar kunnugulegu tölur 29-28 blöstu við áhorfendum þegar örfáar sekúndur voru eftir en þannig enduðu einmitt tveir tapleikir á Kaplakrika í fyrra. Haukamenn ætluðu hins vegar ekki að tapa með þeim hætti eina ferðina enn og Einar Örn Jónsson tryggði framlenginguna með marki á lokasekúndu eftir góða sendingu frá Sigurbergi.
Í fyrri háfleik fyrri framlengingar var FH með forystu þrátt fyrir að Haukar hefðu byrjað með boltann en Sigurbergur skoraði þá ótrúlegt mark beint úr fríkasti og staðan 31-31 í hléi. Björgvin Hólmgeirsson kom Haukum svo yfir í fyrsta skiptið síðan í fyrri hálfleik 32-33 en Bjarni Fritzson jafnaði úr víti en hann var ótrúlega öruggur á línunni. Því varð að framlengja á nýjan leik. Enn var jafnt 34-34 eftir fyrri hálfleik seinni framlengingar. Sigurbergur og Freyr skoruðu svo fjögur glæsileg mörk í seinni hálfleiknum sem tryggðu Haukum sigur.
Sigurinn var ótrúlega mikilvægur fyrir Haukastrákana sem eru komnir í fjögurra liða úrslit í þessari skemmtilegu keppni en bæði lið eiga hrós skilið fyrir frábæra skemmtun.