Mfl. karla fékk góðan liðsstyrk í dag en þá gekk Guðmundur Pedersen til liðs við Hauka. Eins og menn vita er Guðmundur mjög öflugur hornamaður og hann á örugglega eftir að gera góða hluti á nýjum slóðum. Við bjóðum Guðmund innilega velkomin til Hauka og vitum að hann á eftir að eiga frábærar stundir með Haukum næstu árin.