Fyrsti leikur sumarsins

Jæja, þá er fótboltavertíðin að hefjast og fyrsti leikurinn hjá meistaraflokki karla handan við hornið. Leikurinn er á móti hinu Hafnarfjarðarliðinu í 2. deildinni, það er ÍH og leikurinn hefst kl. 20:00 og er spilaður á Ásvöllum á hinum sígræna aðalvelli Hauka. ÍH kom upp úr 3. deildinni síðasta sumar en Haukar féllu úr 1. deildinni og stefnan er sett beint upp aftur. Hjá hinni frábæru fótboltasíðu www.fotbolti.net er Haukum spáð 1. stæti en ÍH 8. sæti en síðan fékk fyrirliða og þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sig.

Nokkrar breitingar hafa verið á hópnum hjá Haukum, Andri Marteinsson er tekinn við skútunni og honum til halds og trausts er Garðar Smári Gunnarsson en þeir eru ekki ókunnir Haukum því þeir báðir hafa þjálfa yngri flokka hjá félaginu.

Leikmannahópurinn er eiginlega svipaður og síðasta sumar, Albert Högni Arason fyriliði liðsins í fyrra er farinn til liðs við Grindavík og í hans stað er kominn hinn leikreyndi Þórhallur Dan Jóhannsson. Hilmar Trausti Arnarsson er búinn að skipta yfir til Keflavíkur og Guðjón Pétur Lýsson er farinn í Breiðablik svo er nokkrir farnir til liðs við Álftanes, einn að markahæðstu leikmönnum liðsins síðasta sumar Jónmundur Grétarsson farinn aftur til liðs við Stjörnunna. Hinn síungi Goran Lukic kominn aftur á Ásvelli einnig er margir ungir og efnilegir leikmenn úr 2. flokki að spila og æfa með meistaraflokki.

Svo vonast ég til að sjá sem flesta á pöllunum á Ásvöllum á mánudaginn klukkan 20:00 og styðja Hauka til sigurs í leiknum og í 2. deildinni.

Áfram Haukar!!!!