Fylkir – Haukar, mfl. kk

Í dag fór fram leikur Fylkis og Hauka í DHL deild karla. Staðan í hálfleik var 12-13 okkar strákum í vil. Sú forustu glataðist í síðari hálfleik og endaði leikurinn með jafntefli, 23-23. Markahæstur í liði Hauka var Guðmundur Pedersen með 5 mörk. Markahæstur í liði Fylkis var Vladimir Duric með 8 mörk.

Nú kemur pása í eina og hálfa viku vegna landsleikja. Næsti leikur strákanna verður á heimavelli miðvikudaginn 1.nóvember klukkan 20:00 gegn Stjörnunni.