Miðvikudaginn 17. nóvember klukkan 19:30 tekur Meistaraflokkur karla á móti spræku liði Safamýrardrengja á heimavelli okkar að Ásvöllum.
Fyrir leikinn eru Haukar í 5. sæti N1 deildarinnar með 6 stig en Fram í því 3. með 8 stig. Það er því mikið undir í þessum leik ef strákarnir ætla að gera atlögu að sæti í deildarbikarnum milli jóla á nýárs.
Leikurinn verður sýndur í beinni á Haukar-Tv.
Sjáumst á pöllunum!
Áfram Haukar!