Hinn frábæri hópur 6. flokks karla gerði það gott í Garðabænum á föstudagskvöldið. Strákarnir stóðu sig allir vel. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu Brasilísku deildina. Mótið var í alla staði frábært og skemmtu strákarnir sér stórkostlega. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að sjá meira til þeirra í sumar.