Hann var þétt setinn Forsalurinn á föstudaginn þegar getraunasnillingar og gestir þeirra fjölmenntu á uppskeruhátíð vetrarins. Hátíðin hófst á girnilegri súpuveislu Valdimars Óskarssonar, „soup de la fond“, sem viðstaddir gerðu góð skil. Þá kynnti veislustjórinn, Ágúst Sindri, úrslit vorleiksins og afhenti glæsileg verðlaun. Fór hann og yfir sögu Haukagetrauna og flutti gamanmál eins og honum er einum lagið. Lauk svo þessari góðu skemmtan með því að gestur flykktust á leik Hauka og Þróttar í knattspyrnu.
Verðlaunahafar í Getraunaleik Hauka
Mynd frá vinstri: Sigurður Jóakimsson (BF Sel), Eiríkur Sigurðsson (EVERTON), Elva Guðmundsdóttir (EVERTON), Eiríkur Svanur (ARSENAL), Sigurjón Bjarnason (Mágarnir) og Gissur Guðmundsson (STEINN)