5 og hálfur vinningur komst í hús í dag og eru það fínar tölur. ég var nú að vonast eftir 6 til 6.5 vinningum en ég sætti mig þó við þetta.
Sverrir Örn tefldi fjögurra peða árás gegn Henrik Molvig. Þessi Henrik er skráður í mótið sem 37. stigahæsti skákmaður mótsins:
1. c4 Nf6 2. Nc3 g6 3. e4 d6 4. d4 Bg7 5. f4 O-O 6. Nf3 c5 7. dxc5 Qa5 8. Bd3 Qxc5 9. Qe2 Bg4 10. Be3 Qc7
Þess má geta að Helgi Áss Grétarsson hefur að minnsta kosti teflt þennan varíant fimm sinnum frá árinu 1997 (+4,=1)
11. O-O Nc6 12. Rac1 Rac8 13. Rfd1 Rfe8 14. Nd5 Qb8 15. b3 Nd7
Hér finnst mér hvítur vera kominn með miklu rýmra og þægilegra tafl. Kannski er Drottningin á b8 menntaður, en ekki finnst mér hún upp á marga fiska þar sem hún stendur í augnablikinu. Og kemur á daginn að hún gerir akkurat ekki nokkurn skapaðan hlut í skákinni!!
16. Qf2 Nc5 17. Bb1 e6 18. Nc3 a6?
Ég verð nú bara að segja að þessi leikur er langt frá því að vera góður. Sverrir finnur hér einfalda og áhrifaríka lausn til þess að koma sér í enn betri stöðu.
19. e5! b6 20. Rxd6 f6 21. h3 Bf5 22. Nd4 Nxd4 23. Bxd4 Bxb1 24. Rxb1 Rcd8
Peði yfir og með betri stöðu lætur Sverrir ekki af hendi áreynslulaust. Hins vegar furða ég mig á því hversu andlaus svartur er í þessari stöðu, líkt og hann sé búinn að sætta sig við yfirburði hvítu stöðunnar. Ég veit vel að ég er enginn meistari, en að auðvelda hvítum að komast svona í uppskipti er ekki það sem ég myndi gera.
25. Rxd8 Qxd8 26. Rd1!
Þennan leik tel ég góðan, nær einu opnu línunni á sitt vald.
26. …Qe7 27. exf6 Bxf6 28. b4!
Vinnur annað peð með þessum leik. Sýnist Sverrir vera að tefla nánast óaðfinnanlega þessa stundina. Kominn með miklu betra!!
28. …Nd7 29. Bxf6 Nxf6
Kannski skiptir það nánast engu máli, en gæti verið að Dxf6 veiti aðeins meiri mótspyrnu??
30. Qxb6 Nh5 31. Qd6 Qxd6 32. Rxd6 Nxf4 33. Ne4 Rf8 34. g3 Ne2 35. Kg2 e5 36. Rxa6
Nú er staðan nánast kolunninn, Sverrir búinn að tefla nánast óaðfinnanlega og færa sér vel í nyt þá fáa ómarkvissa leiki andstæðingsins. Nú er bara formsatriði að klára skákina.
36. …Nd4 37. Ra7 Rf3 38. b5 Re3??
Seinasta BLÖNDERIÐ hjá honum Molvig, Staðan hrynur nú líkt og Róm forðum daga.
39. Nf6 Kf8 40. Nxh7 Ke8 41. Nf6 Kd8 42. Ra8 og gaffallinn bíður á horninu. Hér fannst Molvig kominn tími til að gefa og skella sér út í sólina. Frábær Sigur hjá Sverri sem er sjóðheitur í Köben. Eflaust hefur mjöðurinn sá danski verið með eindæmum góður eftir skák af þessu tagi!! Í næstu umferð fær Sverrir Dan Henry Andersen sem vann Curt Hansen (2625) í þriðju umferð.
Sigurbjörn Björnsson stýrði svörtu mönnunum til sigurs gegn Kenneth Gvein:
1. c4 Nf6 2. Nc3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 O-O 5. e4 d6 6. Nge2 e5 7. O-O Be6 8. d3 Qd7
Þar sem ég er ekki stóridómur í þessum grunnu yfirborðsskýringum, þá leyfi ég mér samt sem áður að tjá mínar skoðanir á stöðunum, þótt ég sé næstum 1000 stigum lægri en Sigurbjörn.
9. f4 c6 10. Rb1 Bh3 11. f5 Bxg2 12. Kxg2 Na6
Mér finnst persónulega taflið á þessum tímapunkti heldur rýmra á hvítt. Svarti Riddarinn á a6 finnst mér vera hálf utangátta, þótt ég sé annálaður aðdáandi kantriddara ;). Í næstu leikjum finnst mér þó eins og hvítur leggi of mikið á stöðuna og Sigurbjörn nýtir sér það til hins ýtrasta.
13. b4 h6 14. h3 d5 15. Ba3 Nc7 16. b5 Rfb8 17. bxc6 bxc6 18. g4 d4 19. Na4 Na6 20. Qd2 Qd8 21. fxg6 fxg6 22. Rxb8 Rxb8 23. g5 Nh5
Eitthvað hlýtur Sigurbjörn að hafa séð í þessari stöðu. Gefur peðið á h6, en aðeins um stundarsakir. Ég er himinlifandi yfir þessari stöðu því þarna eru báðir Riddarar svarts komnir á sitthvorn jaðar skákborðsins. Nú hlýtur enginn að efast af hverju ég elska Riddara á köntunum!! Takk Sigurbjörn.
24. gxh6 Bf6 25. Bc1 Qe7 26. c5
Nú hefst ferðalag Riddarans á a6 og yfir á kóngsvæng þar sem hann mun taka þátt í sókninni!
26. …Nc7 27. Qc2 Ne6 28. Kh2 Kh7
Mikilvægt að ná Riddaranum úr hugsanlegri leppun.
29. Ng3?
Hér gef ég mér leyfi til að setja niður spurningamerki. Menn að mínu kalíberi sjá að það er stórhættulegt að gefa færi á Riddara á f4 reitnum.
29. …Nhf4
Nákvæmlega!!
30. Ne2
Ætli hann sjái ekki að sér greyið?
30. …Bg5 31. Bxf4 Bxf4 32. Nxf4 Nxf4
Riddari valdaður á f4 og stórhættulegur sóknarmaður, það má eiginlega segja að Sigurbjörn er þarna manni yfir í skákinni því blessaði riddarinn á a4 stendur eins og sauður. Gaman að horfa til baka og sjá að Sigurbjörn rak riddarann þangað í átjánda leik með leiknum 18. …d4 og það er að skila sér núna svo um munar, FIMMTÁN leikjum síðar!!!
33. Rf3 Qh4 34. Nb2 Qe1! 35. Qf2 Qc1!
Hér eftir eru nánast allir leikir þvingaðir.
36. Nc4 Rb1 37. Kg3 Nh5 38. Kg4 Qg1 39. Kh4 Kxh6 40. Qxg1 Rxg1
1-0
Fallega teflt hjá Sigubirni og er hann með þrjá og hálfan vinning af fjórum mögulegum. Í næstu umferð fær hann GM Anton Shomoev (2514) sem er skráður í mótið sem tólfti stigahæstur. Sigurbjörn er að ég held með hvítt í þeirri skák og væri vonandi ef hann næði einum feitum punkti þaðan.
Sigurður Daði Sigfússon stýrðu hvítu mönnunum gegn Dimitri Bogdanov, sem skráður er Dani í þessu móti. Af nafninu að dæma tel ég harla ólíklegt að þessi maður sé innfæddur bauni. Hér á eftir fer skákin þeirra með lauslegum athugasemdum:
1. e4 g6 2. d4 Bg7
Af þessum byrjunum að dæma er g6 helvíti vinsæll í fyrsta eða öðrum leik.
3. Rc3 d6 4. Be3 c6 5. Dd2 b5 6. Bd3 Rd7 7. f4 Rb6 8. Rf3 Rc4
Hér strax í byrjun væri ég til í að hafa hvítt. Ég veit það ekki? Kannski er þetta argasta teoría út í gegn, en ekki skil ég hana. Að eyða öllum þessum leikjum í blessaðan riddaraskratta til þess eins að útiloka biskubapar andstæðingsins, finnst mér ekki ómaksins vert!! og hananú
9. Bxc4 bxc4 10. O-O Rf6 11. De2 d5 12. e5 Rg4
Hér er Sigurður Daði kominn í fína stöðu strax eftir tólf leiki og þarf eiginlega ekki að örvænta.
13. Bc1 h5 14. Ra4 Da5 15. Rc5 c3 16. De1
Ég veit það ekki alveg, en er ekki líka hægt að drepa peðið 16. bxc3. Nú veit ég ekki alveg, en eftir Dxc3, 17. Bd2 finnst mér svarta drottningin í hættu án nokkurra bóta, ef hún fer á a3 er því svarað með Hfb1. Ekki má hún taka peðið á c2 vegna 18. Hfc1 Df5, 19. Rh4 og drottning fellur. En eflaust er ég í einverri vitleysu bara, en það verður að koma í ljós síðar.
16. …cxb2 17. Dxa5 bxa1=D 18. Rb3 Db1 19. Dc5 O-O 20. Ba3 Dxa2 21. Ha1 Dxa1+ 22. Rxa1 Hb8
Drottning fyrir tvo hróka og peð. Menn hvíts standa nú miklu mun betur og því finnst mér þetta vera betra á hvítt eins og staðan er á borðinu. Ef að hrókarnir ætla að vinna vel saman gegn hvítu Drottningunni verður svartur að reyna að opna svæði fyrir þá að vinna saman. Þýðir ekkert að hafa þá hangandi á áttundu reitarröðinni. Næstu leikir Sigurðar einkennast af Riddaraskoppi. frá 22. leik og fram að 32. leik, færir hann riddara sína í níu skipti af ellefu!!
23. Rb3 Bf5 24. Dc3 Hfe8 25. Rfd2 Bf8 26. Rf1 Hec8 27. h3 Rh6 28. Re3 h4 29. Rd2 Bd7 30. Rf3 Rf5 31. Rxf5 Bxf5 32. Rxh4 e6 33. Bxf8 Kxf8
Nú er hann Sigurður búinn að vinna peðið til baka og er með betra í stöðunni finnst mér. Nú leikur Sigurður fumlaust til sigurs í skákinni!
34. Dc5+ Kg8 35. Rxf5 gxf5 36. Dxa7 Ha8 37. De7 He8 38. Dg5+ Kf8 39. Dh4 og liðstap er óumflýjanlegt. Eins og Helgi Áss myndi segja í mogganum þá gafst svartur hér upp „saddur lífdaga“. Góð skák hjá Sigurði Daða. 1-0
Heimir Ásgeirsson tefldi við Henrik D Hansen og tók hann í létta Ben-Oni kennslustund. Lítum á herlegheitin:
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e6 4. Rc3 exd5 5. cxd5 d6 6. e4 a6 7. a4 g6 8. f4 Bg7 9. Rf3 Bg4 10. Be2 Bxf3
Ætli undirritaður hafi ekki teflt þessa stöðu nálægt hundrað sinnum við Snorra Karlsson á borðum súfistans í gegnum tíðina og líður mér sæmilega vel með þessa stöðu. Þótt annað sýnist í fljótu bragði, er staða svarts ennþá svolítið lokuð og hvítur á í minni vandræðum með að koma mönnum sínum á ákjósanlega sóknarreiti.
11. Bxf3 Rbd7 12. O-O O-O 13. Be3 He8 14. He1 Hb8 15. De2 Dc7 16. Dc4 Rb6 17. Df1 Rfd7 18. a5 Rc8 19. Dc4
Þennan leik næ ég ekki alveg hjá honum Heimi, nema að hann vilji tapa tempói til að hrekja Riddarann aftur á brott. Nei, í sannleika sagt þá botna ég ekkert í þessum leik. 19. …Ra7 20. He2 He7 21. Ha2 Hbe8 22. Bf2 Kf8 23. Hd2 Rc8 24. Bh4 f6 25. Bg4 h6
Seinustu leikir hafa einkennst af stöðubaráttu og er það ekki fyrir mig að skýra svona helbera vitleysu. En það er eins og Heimir sé að ná sér í fína stöðu eftir manúeringar sínar.
26. Be6 g5 27. Bg3 Hd8 28. f5 Re5 29. Bxe5 fxe5 30. De2 Bf6
Fimm leikjum síðar er Heimir kominn með þennan þvílíka Biskup á e6. Ég talaði um góðan hvítreitan biskup hjá Varða í fyrstu umferð, en þessi er með því betra verður maður að segja. Hann einn og sér ætti að vera nóg til að ég myndi gefast upp!!
31. Dh5 Hh7 32. Rd1 De7 33. Re3 De8 34. Dg6 Dxg6!
Fínn leikur sem gefur Riddaranum holu á að komast í sóknina.
35. fxg6 Hh8 36. Ha1
Er ég kannski að tala tóma þvælu (enda orðinn nokkuð þreyttur) en mér finnst betra að leika Riddaranum strax á f5. En það skiptir litlu máli því staðan er hartnær unnin á Heimi.
36. …Kg7 37. Rf5+ Kxg6 38. Bxc8 Hxc8 39. Rxd6 Hc7 40. Hf1 Bd8 41. Hdf2. 1-0
Flottur vinningur hjá Heimi. Góður.
Þorvarður Fannar Ólafsson svívirti nánast Borge Seidenfaden:
Varði gerði vel í þessari skák, var alltaf með miklu betra og er þetta skák sem ekki þarfnast skýringa. Varði rúllaði náunganum bara upp.
1. e4 d6 2. d4 Nf6 3. Nc3 g6 4. Nge2 Bg7 5. g3 O-O 6. Bg2 e5 7. h3 Nc6 8. Be3 Nh5 9. d5 Ne7 10. g4 Nf6 11. Ng3 c6 12. Qd2 cxd5 13. exd5 Ne8 14. O-O-O f5 15. gxf5 Nxf5 16. Nxf5 Bxf5 17. Be4 Qa5 18. Kb1 Rc8 19. Bxf5 Rxf5 20. Ne4 Qa4 21. Qd3 Qb4 22. h4 Rc4 23. a3 Qa4 24. b3 Qxa3 25. Qxc4 Rf7 26. Qa4 1-0
Hérna fannst Borge komið nóg enda heilum hrók undir. Varði er með þessu greinilega kominn í gang. Gaman verður að fylgjast með honum tefla í þeirri fimmtu umferð.
Einar Gunnar Einarsson Tefldi við John Weber og stýrði svörtu:
1. f4 Rf6 2. Rf3 e6 3. e3 b6 4. Be2 Bb7 5. b3 Be7 6. Bb2 O-O 7. O-O c5 8. De1 d6 9. Bd3 Rbd7 10. Dg3 Rh5
Þetta er rosalega varfærnislegt allt saman en traust og Einar reynir að finna glufur og veikleika hjá andstæðingnum. Eins og sönnum Framsóknarmanni sæmir tekst það einmitt hjá honum á endanum!
11. Dh3 g6 12. g4 Bf613. c3 Rg7 14. Dh6 He8 15. Rg5 Bxg5
Þessi riddaraleikur hjá Hvítum gef ég ekki mikið fyrir. Tvípeðið gerir akkurat ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir hann og Einar getur ekki verið annað en sáttur að læsa aðeins stöðunni þarna á kóngsvængnum
16. fxg5 Re5 17. c4 Hf8 18. Be2 f6 19. d4 Rf7 20. Dh4 Rxg5
Hérna vinnur Einar sannfærandi peð og mér sýnist þetta vera bara nokkuð traust taflmennska!
21. Rd2 De7 22. Hf2 Hf7 23. Haf1 Haf8 24. Dg3 e5?
Hér finnst mér hann Einar gera mistök, hann átti að ég held að leika Riddaranum á e3 og þvinga upp uppskipti. Þá tel ég hann vera með mun betra á leiðinni í endatafl peðinu yfir.
25. d5 Bc8 26. h4 Rh5 27. gxh5 Rh3+ 28. Kg2 Rxf2 29. Hxf2 Hg7 30. h6 Hgf7 31. h5 g5 32. Bd3 Kh8 33. Bf5 Bd7 34. Re4 a6 35. Hf3 Hg8?
Þarna er einn leikur líka sem er ekki nógu nákvæmur. Gæti verið betra að skipta upp á biskupum og reyna í stöðunni að berjast fyrir jafntefli. 36. Bxd7 Dxd7 37. Rxf6 Hxf6 38. Hxf6 De7 39. Df2 Dd8 40. Hf7 g4 41. Df6+ Peðin hrynja síðan á 6. reitarröðinni. Samt sem áður ágætlega teflt hjá Einari. Ef hann heldur áfram að tefla svona þá hlýtur þetta að detta hjá honum. 1-0
Vegna örþreytu þá hef ég ákveðið að staldra hér við og hætta þegar ég á tvær skákir eftir af fjórðu umferð. Það er skák Inga Tandra Traustasonar og Rúnar Bergs. Bið ég þá formlega afsökunar á að hafa skilið þá útundan. Rúnar Berg gerði fjórða jafntefli sitt í röð í þessari umferð og allt eru þetta pulsur gegn mun stigahærri einstaklingum. Það má því segja að hann gæti komist inn á Fide lista með feikna góð byrjunarstig!
Inga Tandra gekk ekki eins vel og tapaði sinni skák í sjúku fjögurra riddara tafli þar sem allt fór í háaloft. Það má því með sanni segja að skákir Inga séu með þeim skemmtilegri til að horfa á, nema að hann sé að tefla á móti jafnteflishundum eins og mér.
Ég óska ykkur drengjunum góðs gengis í komandi umferðum. Ég er farinn að sofa.
kv.
Sveinn Arnarsson