Eins og fyrr hefur komið fram þá mun meistraflokkur karla í handbolta keppa við HC Zomimak í EHF bikarnum á föstudag og laugardag. Báðir leikir verða leiknir í Schenkerhöllinni og því er mikilvægt fyrir strákana að fá góðan stuðning. Þetta eru Evrópuleikir nr. 103 og 104 hjá Haukum.
Í tilefni af því þá fékk heimasíðan leikstjórnanda Haukaliðsins Tjörva Þorgeirsson í stutt spjall um byrjun tímabilsins og Evrópuleikina sem eru framundan.
Nú þegar 8 umferðir eru búnar af deildinni er niðurstaðan 6 sigrar, 2 töp og þar af leiðandi 12 stig. Eru þið ánægðir með byrjunina?
”Já og nei. Auðvitað ekki sáttir með þessa 2 töp á móti ÍBV og Aftureldingu, en við vorum sjálfum okkur verstir í þeim leikjum. En annars er bara ágætur stígandi í þessu hjá okkur.”
Hvernig er að koma inn í tímabilið sem ríkjandi Íslandsmeistarar? Setur það meiri pressu á ykkur?
”Ekkert meira en áður finnst mér. Hvert ár stefnum við á alla titla og það breytist ekkert.”
En spilamennskan er hún eins og menn vilja hafa hana á þessum tímapunkti á tímabilinu?
”Ég held að við séum bara í ágætis standi á þessum tímapunkti, erum ennþá að fínpússa hlutina og erum bara bjartsýnir á veturinn.”
Nú hafið þið ekki getað spilað á ykkar besta liði mikið á tímabilinu, Adam var frá í byrjun og Elli datt út þegar Adam var að koma til baka. Hvernig hefur þetta haft áhfrif á liðið?
”Við erum með breiðan hóp og það kemur bara maður í manns stað. Allir tilbúnir í verkefnið.”
En að þér sjálfum ertu sáttur með þina frammistöðu þar sem af er tímabilinu?
”Mér finnst ég eiga nóg inni. Er að vinna í að komast í ennþá betra form og öxlin er að koma til, þannig að vonandi get ég sýnt mun meira í næstu leikjum.”
Þegar maður lítur á stigatöfluna þá sést það að Haukar eru það lið sem hefur fengið fæst mörk á sig og má það að miklu leyti rekja til þess að Giedrius í markinu hefur verið frábær. Hvernig er að hafa svona mann fyrir aftan sig í vörninni?
”Það er auðvitað bara frábært. Hann hefur verið í miklu stuði í fyrstu leikjunum og vonandi heldur hann því bara áfram kallinn.”
En að Evrópukeppninni, hvað gefur þetta ykkur að taka þátt í evrópukeppni? Sérstaklega í ljósi þess að íslensk lið hafa ekki verið dugleg við það að taka þátt síðustu ár.
”Það er fyrst og fremst bara ógeðslega gaman að taka þátt í þessum leikjum, stemningin á þessum leikjum er oft svipuð einsog í úrslitakeppninni. Þá er líka gaman að sjá hvernig maður stendur á móti þessum handboltamönnum útí heimi og allt fer þetta í reynslubankann hjá manni og hjálpar manni í framtíðinni.”
Nú verða báðir leikirnir leiknir í Schenkerhöllinni, það hlýtur að gefa ykkur smá forskot eða setur það kannski smá meiri pressu á ykkur?
”Bara frábært að fá að spila þessa leiki hérna heima, sleppa við ferðalagið út í þetta skipti. Finnum alls ekki fyrir meiri pressu, við ætlum bara að fara all in í þessa leiki og sjá hvernig útkoman verður svo á laugardagskvöldinu.”
Nú er mótherjinn um helgina HC Zomimak-M. Geturu frætt Haukafólk aðeins um þetta lið, við hverju má búast af þeim?
”Mér finnst þetta bara vera flott handboltalið. Frábæra hornamenn og góðir skotmenn fyrir utan, hávaxnir og þá sérstaklega hægri skyttan. Spila semí aggresíva 6-0 vörn og fínasti markmaður í rammanum. Ef við náum að spila þétta og góða vörn, keyra vel í bakið á þeim og agaðir í sókn, þá eigum við góðan möguleika á að fara áfram í 3. umferð.”
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri í lokin?
”Ég hvet bara alla handboltaáhugamenn að kíkja á þessa veislu um helgina, 120 mín af baráttu og skemmtilegum handbolta. Áfram Haukar!”
Fyrri leikurinn er kl. 20:00 í kvöld, föstudagskvöld, og síðari leikurinn verður á morgun, laugardag, kl. 16:00. Á undan þeim leik spilar mfl. kvenna við Stjörnuna og hefst sá leikur kl. 13:30. Við hvetjum alla til að mæta á föstudaginn og svo auðvitað á laugardaginn en þá eru tveir stór leikir og því mikill handboltadagur hér í Schenkerhöllinni á laugardaginn. Áfram Haukar!