Evrópuævintýrið lengist

Janus Daði skoraði 19 mörk í leikjunum tveimur

Janus Daði skoraði 19 mörk í um helgina

Eftir frábæra frammistöðu í tveimur leikjum um helgina gegn makedónska liðinu HC Zomimak lengist þátttaka meistaraflokks Hauka í handbolta í EHF bikarnum þetta árið.

Fyrri leikurinn fór fram á föstudagskvöld og mættu Haukastrákarnir grimmir til leiks. Eftir jafnar fyrstu mínútur þá gáfu Haukastrákarnir í og voru 17 – 7 yfir í hálfleik og gáfu gestunum svo ekki neinn möguleika í seinni hálfleik og uppskáru góðan 34 – 20 sigur. Markahæstur í leiknum í gær var Janus Daði með 10 mörk og svo skoraði Adam Haukur 7 mörk einnig voru báðir markmenn Hauka í góðum gír og vörðu báðir um 50% skota sem komu á markið.

Eftir þennan stórsigur snérist seinni leikurinn um það að Haukastrákarnir myndu ekki mæta of sigurvissir til leiks sem þeir og gerðu því Haukastrákrnir voru alls ekki kærulausir og voru yfir í hálfleik 12 – 11. Seinni hálfleikurinn var svo nánast formsatriði og kláruðu Haukastrákrnir verkefnið vel og tryggðu sér sinn annan sigur í tveimur leikjum en leikurinn endaði 29 – 24. Eins og í fyrri leiknum var Janus Daði markahæstur en hann skoraði 9 mörk og á eftir honum kom Brynjólfur Snær með 7 mörk öll í seinni hálfleik. Giedrius og Grétar Ari fengu sitthvorn hálfleikinn og vörðu báðir vel.

Þar af leiðandi eru Haukar komnir áfram í 3. umferð EHF bikarsins en þess má geta að þetta er síðasta umferðin áður en riðlakeppnin hefst. Inn í þessa umferð koma mörg af betri liðum Evrópu en þau lið sem Haukar geta mætt eru:

  • Füchse Berlin (Þýskaland)
  • ALPLA HC Hard (Austurríki)
  • OCI/Lions (Holland)
  • Fraikin BM. Granollers (Spánn)
  • RK Gorenje Velenje (Slóvenía)
  • SC Magdeburg (Þýskaland)
  • Bjerringbro-Silkeborg (Danmörk)
  • Helvetia Anaitasuna (Spánn)
  • HBC Nantes (Frakkland)
  • RK Maribor Branik (Slóvenía)
  • Grundfos Tatabanya KC (Ungverjaland)
  • KS Azoty-Pulawy (Pólland)
  • Frisch Auf Göppingen (Þýskaland)
  • Aalborg Håndbold (Danmörk)
  • Frigorificos Morrazo (Spánn)
  • Raphael var Handball (Frakkland)

Dregið verður í næstu umferð núna á þriðjudaginn, 20. október, kl. 10:30 og verður spennandi að sjá hvaða lið kemur upp úr hattinum en þess má geta að Haukar hafa mætt 3 af þessum liðum í þeim rúmalega hundrað Evrópuleikjum sem Haukar hafa spilað í gegnum tíðina en það eru SC Magdeburg, RK Gorenje Velenje og OCI/Lions. Þar af auki eiga Haukar tengingu við danska liðið Aalborg Håndbold en þar leikur Haukamaðurinn Aron Rafn Eðvarðsson. Samkvæmt EHF á fyrri leikurinn að verða leiknn helgina 21./22. og sá seinni helgina 28./29. nóvember en það á þó allt eftir að vera ákveðið í samráði félaganna sem mætast.

Haukastrákarnir fá þó ekki langan tíma til þess að fagna því að vera komnir áfram því strax á fimmtudaginn, 22. október, er næsti leikur í deildinni þegar Víkingar koma í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19.30. Það er því tilvalið fyrir Haukafólk að fjölmenna og styðja strákanna til sigur því þeir eiga það svo sannarlega skilið eftir frábæra frammistöðu um helgina. Áfram Haukar!