Dominos deildirnar að byrja – Stelpur á útivelli í kvöld og strákar heima á morgun, fimmtudag

lengjubikarmestarar HaukarDominos deildirnar í körfu byrja í kvöld og munu stelpurnar ríða á vaðið er þær fara til nágranna okkar í Garðabæ og munu etja kappi við nýliða Stjörnunna í Ásgarði kl. 19:15 í kvöld.

Nýliðar Stjörnunnar hafa bætt við sig töluvert af mannskap fyrir baráttuna í vetur og var þeim t.d. spáð góðu gengi í árlegri spá forsvarsmanna deildarinnar, en þeim er spáð 4 sætinu og þá sæti í úrslitakeppninni. Við óskum Stjörnunni til hamingju með að vera komin í efstu deild.

Haukar hafa líka styrkst mikið og var spáð því að þær ynnu deildina örugglega í sömu spá en Haukar unnu Lengjubikarinn örugglega er úrslitin voru spiluð um síðustu helgi.

Haukar hafa fengið til baka landsliðsmennina Helenu Sverrisdóttur, Jóhönnu Björk og Pálínu en allar hafa verið í „útlegð“ síðustu ár. Helena hefur verið atvinnumaður í fjölda mörg ár og þar á undan var hún fjögur ár í College í USA og alls staðar hefur hún staðið fyrir sínu og hefur verið lykilmaður í A landsliði Íslands frá því hún kom fyrst þar inn er hún var 16 ára. Jóhanna Björk er komin aftur eftir árs viðveru í Breiðablik en hún er uppalin Hamarsmaður en spilaði með Haukum í nokkur ár. Pálína spilaði með Haukum á gullaldarárum kvennaliðsins og skipti eftir það í Keflavík og svo Grindavík. Pálína er mikill sigurvegari og hefur unnið til verðlauna á öllum þeim stöðum sem hún hefur spilað. Auk þess kom Eva Margrét Kristjánsdóttir frá Ísafirði en þar er um að ræða gríðarlegt efni. Hún spilar enn með unglingaflokki og er lykilmaður í yngri landsliðum KKÍ.

Fyrir eiga svo Haukar fullt af ungum og efnilegum leikmönnum eins og Sylvíu sem hefur verið að spla einstaklega vel á undirbúningstímabilinu og var t.d. valinn besti leikmaður Norðurlanda í sínum árgangi fyri einu ári síðan. Einnig er Inga að koma aftur eftir meiðsli og svo eru yngri landsliðstelpur eins og Rósa, Dýrfinna, Sórúnu, Hönnu og Þóra. Að auki hafa Haukar landsliðsbakvörðinn Auði Írisi og hina traustu Maríu Lind. Glæsilegt lið sem Haukar bjóða uppá í vetur og verður örugglega gaman að horfa á þær spila í vetur og hvetjum við alla til að gera sér ferð í Ásgarð og horfa á þær spila fyrsta leikinn í deildinni.

Strákarnir eiga svo heimaleik á móti Snæfell í fyrstu umferð Dominos deildar karla á morgun, fimmtudaginn 15. október kl. 19:15. En nánar um það á morgun.

Enn og aftur hvetjum við alla til að gera sér „stutta“ ferð í Garðabæinn og hvetja stelpurnar áfram.

Áfram Haukar.