Á morgun, þriðjudag 25.apríl, hefst lokakeppni tímabilsins í kvennaboltanum og kallast hún DHL deildarbikar kvenna. Leikið er til þrautar og það lið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í úrslitaleikina. Fjögur efstu lið deildarinnar mætast og leika Íslandsmeistarar ÍBV við liðið sem varð í fjórða sæti deildarinnar Stjörnuna og liðið sem varð í öðru sæti Valur mætir Bikarmeisturum Hauka.
Má búast við skemmtilegum leikjum þar sem að bestu lið vetrarins mætast úrslitakeppni um DHL deildarbikarinn
Leiktíminn á 4 liða úrslitum er eftirfarandi.
25. apríl 2006 Kl. 19:15 Valur Haukar Laugardalshöll.
25. apríl 2006 Kl. 19:15 ÍBV Stjarnan Vestmannaeyjum.
27. apríl 2006 Kl. 19:15 Haukar Valur Ásvellir.
27. apríl 2006 Kl. 19:15 Stjarnan ÍBV Ásgarður.
30. apríl 2006 Kl. 20:00 Valur Haukar Laugardalshöll.
30. apríl 2006 Kl. 16:15 ÍBV Stjarnan Vestmannaeyjum.
Mætum öll og hvetjum stelpurnar okkar til sigurs.
ÁFRAM HAUKAR