Daníel Einarsson aftur í Hauka

Haukar Daníel Einarsson hefur gengið til liðs við meistaraflokk Hauka en hann kemur frá ÍH. Daníel snýr þá aftur á kunnugar slóðir því að hann spilaði einnig með liðinu í fyrstu deildinni árið 2004 og 2005.

Daníel lék átján leiki á miðjunni hjá sameiginlegu liði ÍH/HV í annarri deildinni í sumar og skoraði í þeim þrjú mörk.

Haukaliðið er á fullu í Lengjubikarnum en það má búast við því að Daníel muni ekki fá að spila strax þar sem að hann þarf að komast í betra leikform.