Í ágúst mun meistaraflokkur karla leika nokkra æfingaleiki auk þess að taka þátt í mótum.
Fimmtudaginn 9. ágúst klukkan 19:45 verður æfingaleikur á Ásvöllum gegn HK.
Miðvikudaginn 15. ágúst verður æfingaleikur gegn Stjörnunni á Ásvöllum klukkan 18:30.
Laugardaginn 18. ágúst verða 1 eða 2 æfingaleikir á Ásvöllum.
Strákarnir taka svo þátt á Ragnarsmótinu á Selfossi dagana 22. – 25 ágúst og eru þar í riðli með Fram og Selfossi.
Æfingaferð verður farin til Danmerkur dagana 27. ágúst til 3. september og missa því strákarnir okkar af hinu árlega móti Reykjavík Open.
Gert er ráð fyrir að Íslandsmótið hefjist svo dagana 13. – 16. september en fyrsti leikur strákanna í mótinu verður gegn Íslandsmeisturum Val í Laugardalshöll.
Við hvetjum fólk til að mæta á leikina hjá strákunum og fylgjast með hvernig þeir eru undir veturinn búnir.