Dóri kominn heim

Hinn síungi Halldór Ingólfsson er kominn á heimaslóðir og mun hann leika með meistaraflokksliðinu næsta vetur. Halldór var síðastliðinn vetur þjálfari Stavanger í norsku úrvalsdeildinni. Eins og allir vita lék Dóri þar áður með okkur Haukamönnum og vann með okkur marga titla sem fyrirliði og einn af lykilmönnum liðsins til margra ára.

Við bjóðum Halldór velkominn heim í Haukafjölskylduna.