Strákarnir okkar töpuðu 34-31 fyrir franska liðinu Creteil í París í gær. Þrátt fyrir tapið stóðu þeir sig vel á útivelli gegn sterku liði frakkana. Þeir mættu vel stemmdir til leiks og báru enga virðingu fyrir sterkum andstæðingnum.
Byrjunin var fín og var leikurinn jafn í upphafi. Með hjálp þeirra gulklæddu seig Creteil framúr, en okkar menn létu mótlætið ekki fara með sig og bættu í baráttuna og jöfnuðu 8-8. Þegar um fimm mínútur voru eftir af hálflleiknum var staðan 14-15 okkur í hag en þá hrökk allt í baklás og skoruðu frakkarnir 4 mörk og var staðan 18-15 í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var okkur erfiður, alltaf að elta þá frönsku og þegar rúmar 10 mín. voru eftir var staðan 27-21 fyrir frakkana og útlitið ekki gott. Okkar menn neituðu að gefast upp og náðu að minnka muninn í 32-30 þegar um 3 mín voru eftir og áttu möguleika á að minnka í eitt. Það tókst þó ekki og 3ja marka tap staðreynd.
Næsti leikur í Meistaradeildinn er við Savehof á Ásvöllum um næstu helgi. Nú berja strákarnir okkar sig saman, setja þessa tvo leiki sem búnir eru í reynslubankann og mæta á tánum, tilbúnir í slaginn við Savehof.