Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi meistaraflokks karla í sumar.
Þrír leikmenn eru farnir frá félaginu, Árni Þór Sigtryggsson er farinn til Fraikin BM. Granollers á Spáni, Guðmundur Pedersen er farinn til baka í FH og Samúel Ívar Árnason er farinn til Elverum Handball í Noregi.
Að sama skapi eru komnir þrír leikmenn til félagsins, Gunnar Berg Viktorsson kemur frá Team Tvis Holsterbro í Danmörku, Gísli Guðmundsson kemur frá Ajax Kobenhavn í Danmörku og Arnar Jón Agnarsson er kominn til okkar frá Fylki.
Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma því að í brúnni er nýr maður, Aron Kristjánsson hefur tekið við starfi þjálfara meistaraflokks karla auk þess sem hann er framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Hauka. Aron mun einnig sjá um yfirumsjón þjálfunar yngri flokka drengja. Aron þekkjum við að sjálfsögðu öll frá því hann lék með félaginu til margra ára en Aron er uppalinn Haukamaður og því kominn heim í Haukafjölskylduna.
Smávægilegar breytingar verða á kvennaliðinu. Einn leikmaður er kominn til liðs við félagið en það er Hind Hannesdóttir sem kemur frá Stjörnunni. Lilja Björk Hauksdóttir, sem kom til liðs við stelpurnar á síðasta vetri, mun ekki vera með í vetur þar sem hún á von á barni.
Eins og við vitum einnig er búið að skipta um þjálfara hjá stelpunum en Díana Guðjónsdóttir hefur tekið við þjálfun liðsins auk þess að sjá um yfirumsjón þjálfunar yngri flokka stúlkna.
Við bjóðum alla nýju leikmennina og þjálfarana velkomin í Haukafjölskylduna.