Breyting á Reykjavík Open

Stjarnan hefur bætt við liði í Reykjavík Open í kvennaflokki og því fjölgar leikjum. Mótið hefst því á miðvikudaginn en ekki fimmtudaginn eins og ætlað var.

Á miðvikudaginn spila stelpurnar við Fylki klukkan 17:00 og Stjörnuna klukkan 21:00.
Ekkert verður leikið á fimmtudaginn.
Á föstudaginn spila þær svo við Val klukkan 19:00 og FH klukkan 21:00.
Á laugardaginn spila þær svo einn leik en hann er við Fram klukkan 11:00.

Við hvetjum fólk til að mæta og sjá stelpurnar okkar spila.