Bræður munu berjast

Jæja góðir hálsar, nú er alveg að koma að því.
Úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn hefjast von bráðar. Það eru bræðrafélögin Haukar og Valur sem eigast við í þessari rimmu. Þó svo bæði félögin hafi verið stofnuð sem deildir innan KFUM, verður án efa hart barist á vellinum. Valur er “stóri bróðir” Hauka en enginn er annars bróðir í leik. Þetta verða magnaðir leikir, þar sem boðið verður uppá spennu og aftur spennu. Við sjáum blóð, strit, tár og svita. Margir bíða sjálfsagt óþreyjufullir eftir að geta klappað, stappað, öskrað, nagað neglur og reytt hár sitt.

Við Haukar mætum í komandi leiki full tilhlökkunar, við vitum hvað þetta er rosalega gaman, við ætlum að skemmta okkur og hafa mikið gaman. Við fyllum Ásvelli af rauðum og rjóðum Hauka-áhorfendum og styðjum vel við bakið á strákunum okkar.
Við vitum að áhorfendur geta haft mikil áhrif og góður stuðningur getur fleytt liðinu yfir hvað sem er. Strákanir okkar mæta örugglega tilbúnir og leggja allt undir og það skulum við áhorfendur líka gera og við hvetjum á jákvæðan hátt, sama á hverju gengur. Við búum til góða stemmingu í pöllunum og sendum hana inná völlinn til strákanna okkar.

Það er skyldumæting hjá öllum Haukum á þessa leiki, heimaleikina á Ásvöllum og eins í Valsheimilið. Tökum þátt í gleðinni og hjálpum strákunum okkar að halda bikarnum heima á Ásvöllum, þar á hann heima !

Við bjóðum stuðningsmenn Vals velkomna á Ásvelli sem og alla aðra handboltaunnendur og hvetjum fólk til að fjölmenna og sjá tvö af bestu liðum landsins, Hauka og Val, kljást um Íslandsmeistaratitilinn.

Góða skemmun – Áfram Haukar.
.