Í dag mæta Haukar mæta rússneska stórliðinu Dinamo Astrakhan í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa í handbolta. Leikurin hefst kl 17:00. Síðari leikurinn fer fram ytra viku síðar eða sunnudaginn 14. september kl. 18:00 að staðartíma (+4). Þetta rússneska lið kemur alla leið austan frá Kaspíarhafi frá borginni Astrakhan. Liðið varð bikarmeistari í fyrra en lenti í 6. sæti í deildinni.
Þessir tveir Evrópuleikir sem framundan eru hjá Haukum eru leikir nr. 99 og 100 í Evrópukeppnum í handbolta. Glæsilegur áfangi, en fyrsti Evrópuleikurinn var við Kyndil frá Færeyjum í október 1980 fyrir nær 34 árum. Haukar komust áfram í 2. umferð og lentu þá á móti þýska stórliðinu Nettelstedt. Fyrri leikurinn var á Strandgötunni og var í járnum fram á síðustu mínútur en þá tryggðu þeir þýsku sér sigur 21-18. Útileikurinn var einnig jafn framan af, 8-7 í hálfleik, en Nettelstedt sigraði 17-12 og enduðu síðan sem Evrópumeistarar. Haukar fengu því alvöru eldskírn á móti einu bestu handboltaliði heims strax í upphafi og Evrópusagan státar af glæstum afrekum á móti mörgum af stærstu og bestu handboltaliðum heimsins undanfarin ár og áratugi.Haukaliðið hefur sýnst snerpu og styrk í fyrstu leikjum haustsins og Patrekur þjálfari segir að ekki veiti af því Rússarnir eru með líkamlega sterka leikmenn og það verður mikill baráttuleikur á sunnudaginn á Ásvöllum. „Við ætlum að standa okkur og mætum í leikinn fullir sjálfstrausts“, segir þjálfarinn og að sjálfsögðu mæta Haukar í horni líka fullir sjálfstraust í baráttuna á sunnudaginn og í allan vetur.
Miðaverð er kr. 1.500 en frítt er fyrir 15 ára og yngri. Hauka í horni kortin gilda ekki inn en gilda að sjálfsögðu í VIP rými.
Áfram Haukar!