Stelpurnar í 10. flokki unnu Keflavík í dag 55-41 í stórskemmtilegum leik í Ásgarði en úrslitin fara fram þar um helgina. Keflavíkurstúlkur hafa verið ósigrandi í þessum aldursflokki og unnið alla leiki til þessa. En í dag var dagur Hauka og sigurinn var sannarlega verðskuldaður.
Jafnt var í fyrsta leikhluta og komst Keflavík yfir í lok fyrsta leikhluta. En í öðrum leikhluta fóru stelpurnar á kostum og byggðu upp gott forskot sem þær héldu út leikinn.
Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína í Ásgarð og hvöttu stelpurnar til dáða sem var mjög skemmtilegt.
Þóra Kristín Jónsdóttir var valin maður leiksins en hún stýrði Haukaliðinu af myndarbrag í dag en hún setti 20 stig, tók 9 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.
Næsti stigahæst var Sylvía Hálfdanardóttir með 16 stig og Inga Rún Svansdóttir setti 12 stig.
Nánari umfjöllun um leikinn á Karfan.is
Myndasafn úr leiknum á Karfan.is
Leikir helgarinnar eru í beinni útsendingu á Sporttv.is
Á morgun kl. 14.00 taka stelpurnar í Stúlknaflokki á móti Keflavík og leikið er í Ásgarði. Fjölmennum og styðjum stelpurnar.
Áfram Haukar!