Barátta í 4.umferð boðsmótsins

Margar spennandi skákir voru í 4. umferðinni sem fram fór fimmtudaginn 6.maí. Einni skák var frestað, en þeir Sigurður og Jóhann Helgi munu eigast við 13.maí, en þá verða flestar frestuðu skákanna tefldar.

A-Riðill

Fyrsta skákin til að klárast þetta kvöld varð óvænt skák Árna og Sigurbjarnar. Sigurbjörn fékk strax álitlega stöðu og eftir slæman afleik gaf Árni eftir aðeins 13. leiki. Sverrir Örn stýrði svörtu mönnunum af miklu öryggi gegn Halldóri og sigraði. Sverrir Þorgeirsson virtist hafa vænlega stöðu gegn Guðmundi, en eftir að hafa skipt upp í endatafl, sneri Guðmundur á Sverri og vann.

Úrslit:

Árni-Sigurbjörn 0-1
Sverrir Þ.-Guðmundur 0-1
Halldór-Sverrir Örn 0-1

Staðan:

Sigubjörn 3+fr.
Sverrir Örn 3
Árni 1,5+fr.
Sverrir Þ. 1,5
Guðmundur 1+fr.
Halldór 0+fr.

Frestaðar skákir í riðlinum eru:

Halldór-Árni 7.maí
Guðmundur-Sigurbjörn dags. óákveðin

Lokaumferðin 27.maí

Sverrir Örn-Árni
Guðmundur-Halldór
Sigurbjörn-Sverrir Þ.

Þessi riðill verður spennandi allt til loka, hvernig sem frestuðu skákirnar enda. Ef að úrslitin í þeim verða “eftir bókinni” (auglýsi hér með eftir öðrum frasa með sömu þýðingu, því þessi er ansi þreyttur) og Árni og Sigurbjörn vinna, þá verður skák þeirra Sverris og Árna hrein úrslitaskák um það hvor þeirra fer í A-flokkinn. Guðmundur þyrfti þá að vinna Halldór og treysta á að Sigurbjörn ynni Sverri, til að tryggja sér sæti í B-flokknum á kostnað Sverris. Sigurbjörn hlýtur að teljast öruggur um að komast áfram, en hann þarf þó 1v. til að tryggja það.

B-Riðill

Það var mikið í húfi í öllum skákum B-riðilsins þetta kvöld. Þorvarður og Stefán Freyr mættust í uppgjöri toppana í riðlinum. Þessi lengsta skák kvöldsins endaði með jafntefli, en það þýðir að þeir félagar taka með sér hálfan vinning hvor í A-flokkinn. Þó má geta þess að Stefán er ekki alveg öruggur með sætið, en það kæmi mjög á óvart ef að hann næði ekki a.m.k einum vinningi gegn Gísla og Ragnari. Ingi og Auðbergur mættust í viðureign þeirra sem “fyrirfram var búist við” (sko, fann e-ð annað) að færu í B-flokkinn. Eftir slæman “fingurbrjót” hjá Auðbergi í byrjun var Ingi kominn með unna stöðu og vann nokkuð örugglega úr henni. Gísli og Ragnar mættust í tilþrifamikilli skák, þar sem Ragnar fórnaði manni fyrir sókn, en Gísli varðist mjög vel og náði á endanum að færa sér liðsmuninn í nyt og sigra.

Úrslit:
Gísli-Ragnar 1-0
Ingi-Auðbergur 1-0
Þorvarður-Stefán ½-1/2

Staðan:

Þorvarður 3,5
Stefán Freyr 2,5+fr.
Ingi 2
Gísli 1+fr.
Auðbergur 0,5+fr.
Ragnar 0,5+fr.

Frestaðar skákir:

Auðbergur-Gísli 13.maí
Ragnar-Stefán 13.maí

Lokaumferðin:

Auðbergur-Þorvarður
Ragnar-Ingi
Stefán-Gísli

Svo virðist sem að Ingi hafi tryggt sér sæti í B-flokknum. Það er ljóst að skák þeirra Auðbergs og Gísla verður mjög mikilvæg í baráttunni um sæti í B-flokknum. Ef að Gísli vinnur, þá er Auðbergur úr leik í þeirri baráttu og Ragnar þarf a.m.k. 1,5 v. til að komast í umspil um sætið. Ef að Auðbergur vinnur, þá þarf Ragnar 1v. til að komast í umpilið (2 atskákir) og að treysta á hagstæð úrslit í öðrum skákum.

C-Riðill

Heimir tryggði sér sætið í A-flokknum með sigri á Einari, í skák þar sem Heimir hafði alltaf frumkvæðið. Páll og Snorri tefldu spennandi skák, þar sem Páll virtist þó alltaf vera aðeins á undan, svo fór að hann sneri á Snorra. Mikilvægur sigur fyrir Pál. Hörkupenna var í skák Gísla Péturs og Daníels. Hún fór út í riddaraendatafl, þar sem báðir höfðu 4. peð. Svo virtist sem að Gísli væri að ná yfirhöndinni, þegar Daníel fann réttu leiðina og tryggði sér sigur í “þriller” kvöldsins.

Úrslit:

Gísli Pétur-Daníel 0-1
Heimir-Einar 1-0
Páll-Snorri 1-0

Staðan:

Heimir 4
Daníel 3,5
Páll 2,5
Einar 1,5
Snorri 0,5
Gísli Pétur 0

Lokaumferðin:

Snorri-Gísli
Daníel-Heimir
Einar-Páll tefld 13.maí

Heimir hefur þegar tryggt sér sæti í A-flokknum. Úrslit í þessum riðli gætu ráðist 13.maí, en þá mætast Páll og Einar. Ef að Páll vinnur ekki, er ljóst að þeir fara saman í B-flokkinn, Daníel fylgir Heimi í A-flokkinn og að Snorri og Gísli fara í C-flokkinn. Ef að Páll vinnur, þá þarf Daníel að ná a.m.k jafntefli gegn Heimi til að komast í A-flokkinn, annars teflir hann við Pál um það sæti. Þessi úrslit myndu líka þýða að sigur hjá Snorra gegn Gísla myndi tryggja honum umspil gegn Einari. Umspilið verður eins og áður sagði 2 atskákir.

D-Riðill

Stórleik Sigurðar og Jóhanns Helga var frestað og því voru aðeins 2 skákir tefldar í riðlinum þetta kvöld. Davíð mætti ofjarli sínum í Stefáni, sem vann fremur auðveldlega. Sveinn hafði hvítt gegn Jóni í mjög mikilvægri skák fyrir báða. Sveinn virtist vera kominn með frumkvæði í skákinni, þegar hann lék af sér og Jón sigraði auðveldlega.

Úrslit:

Sveinn—Jón 0-1
Davíð-Stefán 0-1

Staðan:

Jóhann Helgi 3+fr.
Sigurður 2,5+fr.
Jón 2,5
Stefán 2
Sveinn 1
Davíð 0

Frestuð:

Sigurður-Jóhann 13.maí

Lokaumferðin:

Jón-Davíð
Jóhann-Sveinn
Stefán-Sigurður

Dauðariðillinn hefur staðið undir nafni, þar sem “nýstirnið” Sveinn hefur mátt þola mikið mótlæti. Frestaða skákin á eftir að ráða miklu um hvernig framhaldið í riðlinum verður. Jóhanni nægir 1v. gegn Sigurði og Sveini til að tryggja sér sæti í A-flokknum. Sigurður þarf hins vegar 1,5v. gegn Jóhanni og Stefáni til að tryggja sætið. Jón verður að teljast líklegur til að vinna Davíð, sem myndi þýða það að Sigurður þyrfti 1v. til að ná í umspil. Stefán á enn tölfræðilega möguleika á að komast í A-flokkinn. Hann getur hins vegar enn lent í C-flokknum, ef að hann tapar gegn Sigurði. Sveinn þarf þá að vinna Jóhann til að ná í umspil, en miðað við hvernig Sveinn var að tefla á Skákþingi Íslands þá getur hann það á góðum degi. Davíð hefur, eins og við mátti búast, átt erfiða daga í þessum riðli. Hann hefur hins vegar náð sér í mikilvæga reynslu gegn sterkum skákmönnum, sem gæti nýst honum í C-flokknum.