Aron og Björgvin bestir

Pétur Pálsson var valinn besti línumaðurinnÍ hádeginu í dag var úrvalslið umferða 8-14 í N1-deild karla valið. Í úrvalsliðinu eru hvorki fleiri né færri en fjórir leikmenn úr Haukum auk þess sem þjálfarinn, Aron Kristjánsson var valinn sá besti. Einnig var Björgvin Hólmgeirsson valinn besti leikmaðurinn í umferðunum 8-14.

Einnig var valið bestu dómarana sem og bestu umgjörðina. Liðið sem valið var er hægt að sjá með því að „lesa meira“.

 

Úrvalslið umferð 8-14:
Markvörður: Birkir Ívar Guðmundsson (Haukar)
Línumaður: Pétur Pálsson (Haukar)
Miðjumaður: Björgvin Hólmgeirsson (Haukar)
Vinstri skytta: Sigurbergur Sveinsson (Haukar)

Vinstra horn: Oddur Gretarsson (Akureyri)
Hægri skytta: Anton Rúnarsson (Grótta)
Hægra horn: Bjarni Fritzson (FH)

Haukaliðið leikur næsta leik gegn Gróttu á Ásvöllum, næstkomandi fimmtudag klukkan 19:30.