Aron Kristjánsson gerir tveggja ára samning við Hannover

Aron KristjánssonAron Kristjánsson, þjálfari meistaraflokks Hauka í handknattleik, hefur komist að samkomulagi við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover Burgdorf um að taka við stjórn liðsins að loknu yfirstandandi tímabils. Aron gerði tveggja ára samning við liðið. Handknattleiksdeild Hauka óskar Aroni til hamingju með samninginn og óskar honum velfarnaðar í starfi. Það er engum blöðum um það að fletta að Aron hefur gert frábæra hluti fyrir Hauka enda liðið tvöfaldur Íslandsmeistari og handhafi allra titla í íslenskum karlahandknattleik. Aron hefur ekki síður unnið ómetanlegt starf utan vallar þar sem hann hefur lagt nótt við nýtan dag að gera Hauka að öflugra félagi sem er þess burðugt að vera áfram í fremstu röð í íslenskum handknattleik. Aron á því skilið mikið hrós fyrir störf sín og fyrir hönd handknattleiksdeild Hauka færi ég honum bestu þakkir og óskir um að okkur takist að ljúka tímabilinu með glæsibrag.