Aron Kristjánsson, þjálfari meistaraflokks karla í handknattleik, á í viðræðum við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover Burgdorf um að taka við liðinu eftir yfirstandandi tímabil. Aron er samningsbundinn Haukum út næsta tímabil en í samningi hans er ákvæði um að hann geti tekið við stjórn liðs á erlendri grundu að loknu þessu tímabili ef hann tilkynnir Haukum það innan tilskilins tíma sem er ekki liðinn. Líklegt er að niðurstaða liggi fyrir fljótlega. Haukasíðan mun færa frekari fréttir af málinu.