Aron Freyr Eiríksson ungur og efnilegur leikmaður 3.flokks Hauka fór á reynslu til Vejle í Danmörku laugardaginn 28.júlí og var þar í 6 daga. Hann æfði með U-17 og U-18 ára liði félagsins en hann kom svo inná síðasta hálftímann í æfingarleik með varaliði félagsins gegn varaliði Silkeborgar en Íslendingarnir í liði Silkeborgar Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson voru í liðinu og skoraðu þeir báðir í leiknum, en leiknum lauk með 4-2 sigri Silkeborg.
Fyrst og fremst er þetta góð lífsreynsla fyrir mig þar sem leikmenn sem ég var að spila með og á móti voru hátt í 15 árum eldri en ég og þar á meðal einn besti markvörður Danmerkur sem stóð í markinu hjá Silkeborg. Það voru líka fullt af góðum leikmönnum að spila þennan leik, sem eru að reyna koma sér í form, því að tímabilið í Danmörku er rétt að hefjast
Aðspurður um framhaldið hafði Aron þetta að segja Ég fór á fund með stjórnendum og þjálfara þarna og þeir sögðust hafa áhuga að fá mig aftur til æfinga hjá þeim í 30 daga eða svo til að geta kynnst mér almennilega og til að fylgjast meira með mér fótboltalega. Þeir vildu líka að ég kynnist dönsku lífi utan fótboltans, það er ekki nóg að hafa bara áhuga á fótboltanum þarna heldur þarf maður að geta haft gaman að því að vera þarna utan boltans
Hann var mjög ánægður að aðstöðuna hjá félaginu Aðstaðan er mjög góðan þarna og það er séð fyrir öllu, það eru yfirleitt þrír þjálfarar með hvern flokk og eru alltaf með augun á því sem er að gerast og ef tempóið fer einhvað niður eru þeir fljótir að koma því aftur á fullt. Æfingarsvæðið er mjög gott og margir æfingarvellir. Það er verið að byggja nýjan keppnisvöll sem á vera bylting fyrir Vejle og stuðningsmenn liðsins
Annar Íslendingur, Björn Orri Hermannsson leikmaður Fylkis, æfði á samatíma og Aron Freyr með Vejle og spilaði einnig gegn Silkeborg.