Afrekslína Hauka byrjar aftur eftir sumarfrí

Hér sjást nemendur Afreksskóla Hauka sl. vetur. Nemendafjöldi skólans mun tvöfaldast í vetur þar sem iðkendum í handbolta og körfubolta verður einnig boðið að taka þátt. Afrekslína Hauka, sem samanstendur af Afreksskólanum fyrir 9. og 10. bekkinga og svo Afrekssviði Hauka og Flensborgar, hefur starfsemi sína í lok ágústmánaðar eftir sumarfrí. Starfið hefst með kynningarfundi fyrir Afrekssviðsnemendurnar þriðjudaginn 23. ágúst kl. 21:00 á Ásvöllum og á miðvikudeginum 24. ágúst er kynningarfundur fyrir nemendur Afreksskólans og foreldra þeirra kl. 19:30 á Ásvöllum. Kennsla hefst svo samkvæmt stundatöflum mánudaginn 29. ágúst.

 Með bestu kveðju, 

Kristján Ómar Björnsson.