6.flokkur lentu í 2.sæti

6.flokkur karla náði mjög góðum árangri um helgina er leikið var í 8 – liða úrslitum Íslandsmótsins. Í gær léku Haukar í riðli með FH2, ÍBV & Njarðvík.

Haukar sigruðu fyrsta leik sinn örugglega gegn FH2, 6-2. Næstu mótherjar voru Eyjamenn, en sá leikur endaði með 8-1 sigri Hauka. Fyrir síðasta leikinn voru þeir búnir að tryggja sér sigur í riðlinum , en gerðu jafntefli gegn Njarðvík 1-1.

Það var því komið að úrslitaleiknum gegn Breiðablik, en hann var leikinn á Smárahvammsvelli í Kópavogi. Breiðablik voru einu númeri of stórir fyrir okkar stráka, en Blikar sigruðu leikinn 3-0.

Þetta er samt sem áður glæsilegur árangur hjá 6.flokki og langt síðan Haukar hafi átt lið í úrslitaleik í karlabolta á Íslandsmóti.

Glæsilegur árangur hjá ykkur strákar!

ÁFRAM HAUKAR!