5.flokkur karla heldur áfram sigurför sinni á knattspyrnuvellinum. Í dag var leikið í undanúrslitariðlunum í Íslandsmótinu og þar báru Hauka sigurorð af FH og Keflavík í bæði A-liðum og B-liðum. Það þýðir að Haukar mæta Breiðablik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á morgun í Ásgarði (heimavöllur Stjörnunnar). B-liðið spilar klukkan 10:00 og A-liðið kl. 11:00.
Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta á völlinn og sjá hvetja strákana til dáða
Freyr þjálfari hefur nú þegar náð frábærum árangri með flokkanan sína, en hann kom á dögunum 6.flokk karla í úrslitaleik Íslandsmótsins þar sem Haukar lutu í grasi fyrir Breiðablik. Vonanandi nást hagstæðari úrslit gegn þeim grænu á morgun svo ævintýrið geti haldið áfram.