5.flokkur á Nettó-mótinu

Það voru 60 Haukastrákar sem tóku þátt í Nettó-mótinu í Reykjaneshöllinni um helgina í 9 liðum.
Strákarnir voru félaginu og foreldrum til sóma á mótinu og var þjálfara tilknnt það sérstaklega af
mótshöldurum sem sáu um matinn að Haukastrákar hafi verið kurteisir og til fyrirmyndar.
Allir strákarnir lögðu sig fram og voru úrslitin upp og niður eins og gengur og gerist en i
Argentínsku-deildinni unnu Haukar bikar í B úrslitum og í Childe-deildinni urðu Haukar í 3. sæti.
Í Frösnku-deildinni lentu Haukar í 2. sæti eftir frábæran úrslitaleik við Fjölni.
Liðstjórunum viljum við þakka fyrir þeirra framlag sem var í alla staði frábært.
Foreldrum og strákunum viljum við þakka fyrir skemmtilega helgi.
Myndir frá mótinu má sjá á síðu mótsins.
http://picasaweb.google.com/logason