4. flokkur fór í æfingaferð til Danmerkur

Hópmynd af 4. flokknum sem fór til Danmerkur

4 flokkur karla hjá Haukum skrapp í 8 daga æfiningaferð til Vilbjerg í Danmörku 7-14. júní. 

Stákarnir æfðu 1 – 2x alla dagana auk þess sem þeir spiluðu æfingaleiki við heimamenn.  Inn á milli voru haldnir fræðslufundir, farið í Djurs Sommerland skemmtigarðinn, verlsunarferð til Herning, gönguferðir, haldnar kvöldvökur, farið í kirkju og margt fleira. 

Aðbúnaður og umgjörð var til fyrirmyndar.  Strákarnir skemmtu sér konunglega og stóðu sig vel.  Þeir munu geyma þessa ferð í minni sínu lengi.  Danskan alla vega þvældist ekki fyrir þeim í verlsunarferðinni 🙂