3. fl. kvenna Íslandsmeistari í Futsal 2014

3. fl. kv. Íslandsmeistari í Futsal 20143. fl. kvenna tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Futsal 2014 á glæsilegan hátt um helgina.

Stelpurnar unnu Breiðablik 1-0 í undanúrslitum og gerðu sér svo lítið fyrir og unnu Val í úrslitum 2-1 í miklum baráttuleik.

Þessar efnilegu stúlkur spiluðu gríðarlega vel í báðum leikjunum og eiga framtíðana fyrir sér. Heimasíðan óskar þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

 Mynd:

Efri röð frá vinstri – Andrés þjálfari, Tinna Björk, Sunna, Natalía, Dagrún og Andrea

Neðri röð frá vinstri – Nadía, Áslaug, Þórdís, Alexandra, Gunnhildur.