Eftir frækin sigur á Fimleikafélaginu í dag, í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í 2.flokki karla munu Haukar mæta Akureyringum í úrslitaleiknum á morgun.
Leikurinn fer fram í Strandgötu og hefst leikurinn kl. 14:00. Stemmingin í Strandgötunni í dag var frábær og var nánast fullt hús.
Haukar sigruðu leikinn með einu marki 26-25 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 12-8.
Í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Akureyri lið ÍR með þremur mörkum 32-29 eftir að ÍR hafði verið yfir í hálfleik 16-14.
Við hvetjum alla Haukara til að fjölmenna í Strandgötuna á morgun.