Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður 3, 2 og mfl kvk, hefur verið valin í landsliðsverkefni með U17 sem fer fram í Svartfjallalandi, en þetta er undan riðil fyrir evrópumeistaramótið.
Ísland leikur þrjá leiki í þessari undankeppni. Fyrst við heimamenn, Svartfellinga, 22 október, svo við Færeyjar 24 okt og síðast við Finnland þann 27 október.
Alexandra er að taka þátt í þriðja verkefninu með U17. Þess má geta að Alexandra er aðeins 15 ára og er því með yngri leikmönnum í hópnum. Alexandra er gríðalegt efni og hefur verið að spila einstaklega vel með yngri flokkum Hauka en búast má við að hún eigi eftir að spila stórt hlutverk í mfl. kvenna á næsta ári þrátt fyrir ungan aldur. Alexandra er að auki afreksíþróttamaður í handbolta en hún hefur líka verið í yngri landsliðum HSÍ og ljóst er að þarna er mikið íþróttaefni á ferðinni.
Haukar óska henni til hamingju með áfangan.