Meistaraflokkur karla steig stór skref í átt að 1. deildarsætinu og sigri í 2. deildinni með því að vinna Magna á Grenivík 2 – 0 með mörkum frá Davíði Ellerts og Úlfari Hrafni. Með þessum sigri og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum eru Haukar nú komnir með 5 stiga forusstu þegar 9 stig eru eftir í pottinum. Haukar eru í efsta sæti með 35 stig svo kemur Selfoss með 30 og síðan ÍR og KS/Leiftur með 29 stig. Næsti leikur Hauka er heimaleikur á móti Sindra laugardaginn 1. september kl. 14.00 og hvet ég sem flesta til að koma og þenja raddaböndin með Haukasveitinni (stuðnigsmannasveit Hauka) og tryggja 1. deildar sætið endalega.