1.deild karla hefst í kvöld

1.deild karla í handknattleik hefst í kvöld með þremur leikjum, en umferðin lýkur svo á morgun með einum leik.

Í 1.deildinni í ár leika átta lið, Afturelding, ÍBV, Grótta, ÍR, Fjölnir, Haukar U, Selfoss og Þróttur Reykjavík.

Fyrsti leikur Hauka U er á laugardaginn klukkan 18:15 gegn Fjölni, en leikurinn verður leikinn á Ásvöllum, eftir leikjum Hauka og Stjörnunnar í karla og kvenna flokki.

Þetta er þriðja keppnistímabil Hauka U í 1.deildinni. Lið Hauka U er nánast einungis skipað uppöldum leikmönnum Hauka, leikmönnum sem enn eru að spila í yngri flokkunum eða ný gengnir upp úr þeim. Svo eru inn á milli leikmenn sem eru aðeins eldri en hafa ekki fengið tækifæri til að spila með Haukum í úrvalsdeildinni.

Í liðinu eru nokkrir leikmenn sem hafa leikið yngri landsleiki Íslands og eiga framtíðina fyrir sér og því verður gaman að fylgjast með liðinu á þessu tímabili.