Valið hefur verið 24 manna landsliðshóp Íslands í handknattleik kvenna, leikmönnum yngri en 18 ára. Í þeim hóp eiga Haukar þrjá leikmenn. Þjálfarar hópsins eru þau Guðríður Guðjónsdóttir og Ómar Örn Sverrisson.
Haukaleikmennirnir eru þær, Karen Helga Sigurjónsdóttir, Guðrún Ósk Guðjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir.
Karen hefur verið að leika töluvert með meistaraflokki Hauka í vetur og hefur Viktoría verið í hóp í undanförnum leikjum.
Mun hópurinn æfa fjóra daga í röð, 29.mars til 1. apríl og munu æfingarnar fara fram í Íþróttahúsi Fylkis í Árbænum.
Við óskum stelpunum til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis á æfingunum.