Politikencup.
þriðja umferð
Hvítt: Arseny Kargain (2408)
Svart: Sverrir Örn Björnsson (2054)
1.e2-e4 Ng8-f6 2.e4-e5 Nf6-d5 3.d2-d4 d7-d6 4.Ng1-f3
Sverrir Örn teflir Alekhine vörnina nokkuð oft og með fínum árangri. Sverrir Örn er einn af þeim skákmönnum sem ekki er hægt að stúdera fyrirfram(mér leyfist að segja þetta). Þú veist hreinlega ekki hverju þú átt von á. 4. …d6xe5 5.Nf3xe5 c7-c6 6.Qd1-f3
Þessi Drottningarleikur er nokkuð sjaldgæfur ef farið er eftir mínum kokkabókum og grúski. Aðeins finn ég 13 skákir sem innihalda þessa leikjaröð. Bc8-e6 7.c2-c3 Nb8-d7 8.Ne5-d3 Eftir þennan leik hvíts mælir skákforritið mitt stöðuna -0.01.
8. …g7-g6
En hún mælir ekki með g6 leiknum. Hún vill frekar fara í Db6 með hugmyndinni á langhrókun og einhverju shaky dóti. Einhvernveginn er ég farinn að efast um styrk æfingaforrits míns 🙂 Það er ekki að furða að ekkert gangi hjá mér!! Blame it on the computer… en aftur að skákinni. Samt sem áður er Sverrir með fína stöðu eftir þessa fáu byrjunarleiki!
9.Nb1-d2 Bf8-g7
Smá pæling svona fra mér: Það sjá allir að riddarinn er á leiðinni á e4, leiðindareit, með biskupinn sem backup á c1. Er ekki hægt að eyðileggja hótanirnar með Bh6 í staðinn fyrir Bg7?? spyr sá sem ekki veit.
10.Nd2-e4 h7-h6 11.Ne4-c5 Nd7xc5 12.Nd3xc5 Be6-c8 13.Bf1-c4 0-0
hvað með 13. …b6, 14. Rd3 og hrókera síðan? Kemur kannski út á það sama!
14.0-0 a7-a5 15.Rf1-e1 b7-b6 16.Nc5-d3 Bc8-a6 17.Bc4-b3 Ba6xd3 18.Qf3xd3 Qd8-d6 19.Bc1-d2 a5-a4 20.Bb3-c2 b6-b5
Hér er svartur með fína stöðu að mínu mati. Sverrir er búinn að tefla þessa skák mjög vel og bakka ég ekkert með það sem ég sagði í pirstli mínum um fyrstu umferð! 21.Ra1-d1 Rf8-e8 22.Qd3-h3 h6-h5
Er þessi leikur ekki alveg lífsnauðsynlegur fyrir skákina? Ég er farinn að hallast á það, ýmsar skemmtilegar hótanir sem eiga sér stað þarna.
23.a2-a3 Ra8-d8 24.Re1-e4 Qd6-d7 25.Qh3xd7 Rd8xd7 26.Rd1-e1 e7-e6
Hér er staðan orðin ansi lokuð og er hún ekki skýrandi fyrir mann að mínu kalíberi :). Þess vegna læt ég hana rúlla bara það sem eftir er. 27.h2-h3 Nd5-b6 28.Bd2-c1 Nb6-c4 29.g2-g4 Nc4-d6 30.Re4-e2 h5xg4 31.h3xg4 Nd6-c4 32.f2-f4 Bg7-f6 33.Kg1-g2 Kg8-g7 34.f4-f5 g6xf5 35.g4xf5 e6-e5 36.Kg2-f3 Bf6-h4 37.Re1-h1 Re8-h8 38.d4xe5 Rd7-d5 39.Re2-h2 Nc4xe5+ 40.Kf3-g2 Kg7-f6 41.Rh2xh4 1-0
Samt sem áður er þetta hörkutaflmennska hjá Sverri Erni og fær hann mikið lófaklapp úr stúderingarherberginu á Súfistanum. Gangi þér vel.
Þorvarður tefldi með hvítum mönnum við Palle Neilsen(1893) og satt best að segja rúllaði Varði honum upp. Sjaldan eða aldrei hefur eins sterkur hvítreitur Biskup sést á danskri grund. Við á súfistanum höfum gefið honum nafnið Káti Biskupinn. Þorvarður var þó í nokkrum vandræðum í skákinni og stjórnaði Palle skákinni lengstum. En Varði er þekktur fyrir það að láta svoleiðis pjakka ekki á sig fá, s.b.r skákina við Svein Arnarsson í skákþingi Hauka nýverið.
Heimir gerði jafntefli við Helga Joensen, hinn fljúgandi Færeying. Skákin leystist fljótlega upp í drottningarendatafl og jafnmörg peð á mann, fjögur á kóngsvæng og tvö á drottningarvæng. Heimir var þó með aðeins skárra í endataflinu en Helgi náði að þráskáka Heimi og þar með var jafntefli úrslitin í 57. leik. Við skulum vona að svona stöður verði okkur Íslendingum í hag og við náum að vinna úr svona stöðum. Áfram Heimir, annars kaupi ég síma einhversstaðar annars staðar!
Ingi Tandri átti ekki í miklum erfiðleikum með tæplega 1050 stiga mann í sinni skák. Hann gaf skemmtilega peð á g7 og eftir það átti hann í hótunum á g-línunni sem urðu hvítum að falli. Ingi Tandri er með ólíkindum. Skákirnar hans á þessu móti eru búnar að vera æsispennandi og er mjög gaman að fylgjast með. Sú saga er fer eins og eldur í sinu um alla Kaupmannahöfn að mótstjórn hafi ákveðið að sýna allar skákir Inga beint á netinu.
Einar Gunnar Einarsson tefldi með hvítu á móti mun stigahærri andstæðing. Harry Andersen. Eftir flotta byrjun var hann komin skiptamun yfir eftir aðeins 17. leik. Eitthvað fataðist honum þó flugið og missti niður unna stöðu. Samt sem áður hefur Einar sínt í þessum þremur umferðum að hann er underrated og er að veita stigahærri mönnum mikla keppni. Gangi þér vel Einar.
Sigurbjörn Björnsson er að tefla vel á þessu móti, kominn með tvo og hálfan vinning af þrem mögulegum. Hann vann Mio Malmberg í þeirri þriðju. Sigubjörn átti alltaf skemmtilega máthótun og til að forðast hana þurfti Míó minn að gefa skiptamun. Eftirleikurinn var alltof auðveldur fyrir Sigurbjörn sem sýndi styrk sinn í þessari skák. 20. leikur Sigurbjörns Be5 og 22. leikur hans c6 eru svona leikir sem maður brosir yfir. Legg kippu á það að Sigurbjörn verði í topp 15 í mótinu.
Rúnar Berg er solid þessa dagana og gerði jafntefli í þeirri þriðju og er með 1 og hálfan og Sigurður Daði er með tvo vinninga eftir jafntefli i þeirri þriðju. umfjöllun um fjórðu umferð birtist í nótt og verður hún að öllum líkindum víðameiri en þessi hér.
Áfram Ísland
kv. Sveinn Arnarsson