Um næstu helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U-19 og U-17 ára landsliðum karla. Haukar eiga þrjá fulltrúa í þeim hópum.
Í U-17 ára landsliðinu sem er landslið fyrir þá sem eru fæddir 1994 og seinna eru þrír Haukastrákar.
Það eru þeir Magnús Þór Gunnarsson, Gunnar Örvar Stefánsson og Þórður Jón Jóhannesson en hann er einn af tveimur sem fæddir eru 1995 í hópnum.
Við óskum strákunum til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis á æfingunum sem fram fara í Kórnum um næstu helgi.