Þrír Haukamenn í landsliðið

Þrír Haukamenn hafa verið valdir í landslið Íslands sem fer til Frakklands í æfingaferð um páskana. Auk þess að dvelja í æfingabúðum spilar landsliðið á æfingamóti 6.-8. apríl. Leikmennirnir eru Andri Stefan, Ásgeir Örn Hallgrímsson (Lemgo) og Vignir Svavarsson (Skjern). Til gamans má geta að þessir þrír leikmenn eru ekki aðeins fyrrverandi leikmenn Hauka heldur allir uppaldir Haukamenn í húð og hár!!