Þrír handboltaleikir á fjórum dögum

HaukarUm helgina verður nóg að gera hjá Haukafólki í handbolta. Á fjórum dögum, frá fimmtudegi til sunnudags, leika meistaraflokkar félagsins þrjá leiki, strákarnir tvo og stelpurnar einn. Fyrsti leikurinn verður á fimmtudaginn þegar strákarnir taka á móti HK á Ásvöllum, stelpurnar fara svo í heimsókn á Seltjarnarnesið til Gróttu á laugardaginn og á sunnudaginn leika svo strákarnir aftur gegn FH í Kaplakrika.

 

Eins og staðan er í N1 deild karla eru Haukamenn í 6. sæti með 8 stig og HK í 3. sæti með 10 stig, jafnmörg stig og Fram og FH. Haukar geta því komist að hið þessara félaga en Haukar og Fram eiga bæði leik til góða vegna Evrópuleikja. Síðasti leikur HK var á heimavelli þar sem liðið sigraði FH, 32 – 28. Haukar hafa ekki leiki´í deildinni síðan 19. nóvember þegar liðið tók lið Akureyringa í kennslustund og sigraði með 12 mörkum, 34 – 22. 

Haukar eru með næst besta markahlutfallið í deildinni á eftir Val. Valur hefur 38 mörk í plús og Haukar 20 mörk í plús. Næsta lið á eftir Haukum er Fram með 6 mörk í plús. Einungis þrjú lið eru með mínus markatölu en það eru HK, sem er jafnt FH og Fram með 10 stig, með 6 mörk í mínus, Stjarnan sem er í 7. sæti með 19 mörk í mínus og Víkingur sem er í neðsta sæti deildarinnar og með 42 mörk í mínus.

Á sunnudaginn leika svo strákarnir við FH í Kaplakrika en leikurinn er í 8 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Haukar hafa harma að hefna en þeir töpuðu í eftirminnilegum leik þar sem dómaramistök kostuðu Haukamenn sigurinn. Því má búast við að Haukastrákarnir mætir dýrvitlausir til leiks í Kaplakrika á sunnudaginn.

Haukastelpur eru í efsta sæti deildarinnar með 14 stig eftir 8 leiki. Þær eru jafnar Stjörnunni en eru með betri markamun í innbyrðis viðureignum. Stelpurnar fara í heimsókn til Gróttu á Seltjarnarnesi á laugardaginn. Grótta er fyrir leikinn í sjöunda, og næst neðsta, sæti deildarinnar með 4 stig. Haukar og Grótta hafa einu sinni mæst áður í vetur en það var á Ásvöllum þegar Haukastelpur fóru með sigur af hólmi 31 – 28. Síðan þá hefur mikill stígandi verið í liði Hauka og má búast við að stelpurnar mæti dýrvitlausar í leikinn á sunnudaginn eins og í flesta aðra leiki. Lið Hauka á þrjá leiki eftir fyrir áramót en þær mæta liði HK á Ásvöllum næstkomandi þriðjudag og Fylki í Fylkishöllinni laugardaginn 13. desember.

En leikir helgarinnar eru því þessir:

Fimmtudag               Ásvellir          19:00          Haukar – HK              N1 deild karla

Laugardag                Seltjarnarnes  16:00          Grótta – Haukar         N1 deild kvenna

Sunnudag                Kaplakriki       15:30          FH – Haukar             Eimskips bikar karla

Við hvetjum alla Haukamenn til að fjölmenna á leikina og styðja sitt félag til sigurs.