Þjálfarar meistaraflokka vetrarins

Miklar breytingar hafa átt sér stað í þjálfaramálum meistaraflokka karla og kvenna fyrir veturinn. Eins og flestir vita hefur Aron Kristjánsson tekið við þjálfun meistaraflokks karla og Díana Guðjónsdóttir hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna. Einar Jónsson verður þjálfari Hauka U.

Aron Kristjánsson er Haukamaður í húð og hár. Aron lék með okkur Haukamönnum til margra ára og varð meðal annars deildarmeistari með okkur 1995, 2001, 2002 og 2003, bikarmeistari árin 1997, 2001 og 2002 og Íslandsmeistari 2001 og 2003.
Árið 1998 gekk Aron til liðs við Skjern Håndbold í Danmörku frá Haukum. Aron lék þar til ársins 2001 þegar hann kom heim og lék með okkur Haukamönnum til ársins 2003 eða þar til hann fór út að nýju og gekk til liðs við Tvis Holsterbro sem einnig er í Danaveldi. Hann lék með liðinu eitt tímabil en fór þá til Skjern og gerðist aðstoðarþjálfari. Hann var að lokum ráðinn þjálfari liðsins. Aron hætti þjálfun liðsins nú í vor.
Óskar Ármannsson mun vera Aroni til aðstoðar í vetur.
Páll Ólafsson, fyrrverandi þjálfari meistaraflokks karla, mun fara til annarra starfa á vegum handknattleiksdeildarinnar og starfa sem íþróttaráðgjafi (sport chef).

Díana Guðjónsdóttir hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna. Hún tekur við af Einari Jónssyni sem mun færa sig um set og þjálfa Hauka U.
Díana hefur síðustu tvö ár þjálfað meistaraflokks kvenna lið HK úr Kópavogi með góðum árangri. Díana er fyrrverandi leikmaður Vals og Fram. Díana hefur auk þess að þjálfa meistaraflokk kvenna hjá HK þjálfað yngri flokka kvenna með góðum árangri.

Einar Jónsson mun þjálfa Hauka U í 1. deild karla í vetur. Einar þekkjum við öll sem Haukamann í gegn. Einar lék með Haukum til margra ára. Hann þjálfaði síðasta vetur meistaraflokks kvenna lið okkar og vann með þeim bikarmeistaratitilinn.
Einar hefur einnig þjálfað marga yngri flokka félagsins. Hann þjálfaði 3. og 4. flokk karla auk unglingaflokks kvenna. Einar var aðstoðarmaður Sebastíans Alexanderssonar hjá Selfossi áður en hann tók við þjálfun stelpnanna okkar.

Það eru því miklar breytingar sem hafa átt sér stað hjá okkur Haukamönnum í vor og í sumar og vonumst við til að þær verði til góðs. Á næstu dögum munum við svo fjalla um breytingar á leikmannahópum meistaraflokkanna.