Í dag valdi Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari U-19 ára landsliðs kvenna 18 manna hóp sem heldur til Rússlands í lok þessa mánaðar og leikur þar í undankeppni Evrópumótsins. Í þeim hópi er Þórhildur Stefánsdóttir leikmaður 2. og meistaraflokks Hauka en hún gekk til liðs við Hauka fyrir áramót frá HK/Víking.
Í Rússlandi leikur Ísland gegn heimamönnum, Tékklandi og Spáni. Undanriðlarnir eru sex og komast efstu liðin í hverjum riðli áfram í úrslitakeppnina auk tveggja liða með besta árangur í 2.sæti. Aðalkeppnin verður haldin í maí og júní í Makedoníu.
Við óskum Þórhildi til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis í Rússlandi.