Í gær var tilkynnt úrvalslið karla og kvenna í N1-deildunum í fyrstu sjö umferðunum. Einnig var besti leikmaður, besti þjálfarinn og besta umgjörðin tilkynnt.
Í úrvalsliði kvenna áttu Haukar einn fulltrúa en það var Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Í úrvalsliði karla voru þeir Sigurbergur Sveinsson og Freyr Brynjarsson valdir úr liði Hauka sem situr á toppi N1-deildarinnar sem stendur. Aron Kristjánsson þjálfari Hauka var valinn besti þjálfarinn í N1-deild karla.
Úrvalslið N1-deildar kvenna eftir fyrstu níu umferðirnar er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markvörður: Berglind Íris Hansdóttir, Val
Línumaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val
Vinstri hornamaður: Rebekka Skúladóttir, Val
Skytta vinstra megin: Hrafnhildur Skúladóttir, Val
Miðjumaður: Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, FH
Skytta hægra megin: Alina Tamasan, Stjörnunni
Hægri hornamaður: Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum
Þjálfari: Stefán Arnarson, Val
Úrvalslið karla er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Línumaður: Atli Ævar Ingólfsson, HK
Vinstra horn: Freyr Brynjarsson, Haukum
Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val
Vinstri skytta: Sigurbergur Sveinsson, Haukum
Hægri skytta: Ólafur Guðmundsson, FH
Miðjumaður: Jónatan Þór Magnússon, Akureyri
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Besta umgjörð: Akureyri handboltafélag