Haukar leika sinn fyrsta leik í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar á föstudaginn gegn sterku liði Snæfells. Þetta er í fyrsta skipti sem að Haukar leika í úrslitakeppninni í sjö ár og því mikil eftirvænting fyrir leikjunum gegn Snæfell.
Ákveðið hefur verið að fara hópferð í Hólminn á föstudaginn og leggur rútan af stað kl. 15:00 frá Ásvöllum. Hægt er að panta sér pláss í rútuna á baldur@hafnarfjordur.is og kostar ferðinn 2000 krónur á mann.
Vonast er til að Haukafólk fjölmenni í Hólminn á föstudaginn en fyrir þá sem ekki komast þá stefnir Haukar TV að vera á svæðinu og sýna frá leiknum.