Úrslit æfingarinnar þann 4. apríl

Arfaslök þátttaka var á æfingunni vegna frestaðra skáka á Boðsmótinu niðri í veislusalnum. Þó hafði undirritaður ekki séð tvo áður af þessum 9 sem tóku þátt.

Úrslit:

1. Sverrir með 8 vinninga af 8
2. Ingi 5,5
3.- 5. Stefán Freyr, Stefán P. og Ingvar 5
6. Geir 3
7. Kristján 2,5
8. Inga 2
9. Rúnar 0

Að æfingunni lokinni tóku þeir sem höfðu áhuga nokkrar tvískákir eins og venjulega. Ingi og Geir voru í liði og enduðu með 5 v. af 9 eftir góða byrjun og sigur í seinustu umferðinni. Hins vegar fengum við Sverrir 4 vinninga og töpuðum naumlega.

Æfingarnar eru haldnar kl. 19:30 í Haukahúsinu að Ásvöllum og eru allir velkomnir. Vonast til að sjá sem flesta!